top of page
Orkan í miðjunni
tengsl
hreyfing
umhverfi
ondun
svefn
Næring og melting

Grunnstoðir › Umhverfi og náttúra

GRUNNSTOÐ 3 AF 6

Umhverfi og
náttúra

skilyrðin sem líkaminn les

Líkaminn starfar ekki í tómarúmi. Birta, loft, hljóð, hitastig og nærumhverfi senda honum stöðug skilaboð — og geta ýmist stutt hann í að stilla sig af eða fært hann úr takti. Hér horfum við á það sem er hagnýtt og hóflegt.

Orkan í miðjunni — sex stoðir sem styðja sama reksturinn.

KJARNINN

Líkaminn les heiminn áður en við náum að hugsa um hann.

ÞEKKIRÐU ÞETTA?

Líkaminn er að senda skilaboð

Þetta eru ekki merki um að eitthvað sé að þér. Þetta eru upplýsingar um skilyrðin — og góður staður til að byrja að hlusta.

„Ég er inni nánast allan daginn“

Dagsbirta er sterkasta merki líkamsklukkunnar — og innanhússbirta er margfalt daufari en birtan úti, jafnvel á skýjuðum degi.

„Mér líður verr í ákveðnu húsnæði“

Loftgæði, raki og hávaði geta haft áhrif á líðan. Það er þess virði að taka eftir mynstrinu — án þess að óttast umhverfið.

„Áreitið er stöðugt“

Ljós, skjáir og hávaði krefjast úrvinnslu. Kyrrari staðir gefa taugakerfinu tækifæri til að hvílast.

HVAÐ GERIST Í LÍKAMANUM?

Orka, stjórnun og burðir

Sound Health horfir á heilsu í gegnum þrjár tengdar víddir. Umhverfið snertir þær allar.

ORKA

Minna óþarfa álag

Gott umhverfi léttir á kerfinu. Minna fer í varnir og aðlögun — og meira verður eftir til afnota.

STJÓRNUN

Birta stillir klukkuna

Morgunbirta gefur líkamsklukkunni skýrt upphafsmerki. Náttúra og kyrrð geta hjálpað taugakerfinu að hægja á sér.

BURÐIR

Skilin við umheiminn

Húð, lungu og melting eru snertifletir okkar við umhverfið. Heilbrigð skil hjálpa líkamanum að halda jafnvægi.

ORKUBÓKHALDIÐ

Hvað styður reksturinn — og hvað gerir hann dýrari?

Ekki öll orka er laus til afnota. Líkaminn borgar grunnreksturinn fyrst. Það sem eftir er fáum við að ráðstafa og njóta.

Grunnrekstur

Orka til afnota

Varaforði

Fjárfesting

Styður grunnþörfina og léttir á kerfinu

+  Dagsbirta snemma dags

+  Ferskt loft og góð loftræsting

+  Gróður, vatn og útsýni

+  Kyrrð og minna áreiti

Útgjöld

Gerir reksturinn dýrari og þrengir að orkunni

−  Lítil dagsbirta og sterk birta á kvöldin

−  Raki og léleg loftgæði innandyra

−  Stöðugur hávaði og skjááreiti

−  Reykur og óþarfa ilm- og aukaefni

HEILSUFÆRI

Byrjaðu þar sem þú ert

Það þarf ekki allt að breytast í einu. Veldu eitt heilsufæri sem passar við orkuna þína núna — smá breyting getur skipt máli þegar hún hittir rétt.

SKREF 1 · STÖÐGA

Þegar orkan er lítil

Morgunbirta

Farðu út í dagsbirtu fljótlega eftir að þú vaknar.

Loftgæði

Opnaðu glugga eða farðu út þegar loftið er betra þar.

SKREF 2 · ENDURHEIMTA

Þegar svigrúmið vex

Umhverfisró

Finndu stað þar sem sjónrænt áreiti og hávaði eru minni.

Náttúruhljóð

Gefðu fuglum, vindi eða vatni óskipta athygli.

SKREF 3 · BYGGJA

Þegar grunnurinn styrkist

Grænka

Leitaðu í garð, gróður eða annað grænt umhverfi.

Hitastig

Leyfðu líkamanum að kynnast hóflegum hita eða svala.

Í SAMSPILI

Heilsa verður til í samspili

Grunnstoðirnar eru ekki aðskilin hólf. Þegar ein styrkist fá hinar oft meðbyr.

ondun

Svefn og dægurtaktur

Birta að degi og myrkur að kvöldi gefa klukkunni skýr skilaboð.

svefn

Hreyfing

Útivera er einföld leið til að sameina birtu og hreyfingu.

hreyfing

Öndun og streitustilling

Náttúra og kyrrð gefa taugakerfinu rými til að hægja á sér.

FRÆÐSLA

Dýpra í umhverfið

Viltu skilja betur hvað liggur að baki? Hér birtast nýjustu greinar og upptökur um umhverfi og náttúru — lestu eða hlustaðu á þínum hraða.

Greinar

Upptökur

Upptökur eru hluti af áskrift Sound Health — fræðsla sem þú getur hlustað á eða horft á þegar þér hentar.

FYRIR ÁSKRIFENDUR

TEGUND

Lengd

Titill upptöku

Stutt lýsing á upptökunni birtist hér.

Fyrir áskrifendur →

NÆSTA SKREF

Hvar leynast þín heilsufæri?

SoundCheck hjálpar þér að sjá hvernig grunnstoðirnar sex spila saman hjá þér — og hvar er skynsamlegast að byrja.

Fjölskylda við matarborð

SKOÐAÐU HINAR GRUNNSTOÐIRNAR

tengsl

Tengsl og tilgangur

hreyfing

Hreyfing

umhverfi

Umhverfi og náttúra
Þú ert hér

ondun

Öndun og streitustilling

svefn

Svefn og dægurtaktur

naering

Næring og melting

Efnið er almenn fræðsla og kemur ekki í stað einstaklingsbundins læknismats. Ef einkenni eru alvarleg, langvarandi eða versnandi skaltu leita til læknis.

bottom of page