

Grunnstoðir › Hreyfing
GRUNNSTOÐ 2 AF 6
Hreyfing
sem byggir upp, en tæmir ekki
Vöðvarnir eru eitt stærsta efnaskiptalíffæri líkamans. Hreyfing styður blóðsykurstjórnun, blóðflæði og orku — en hún þarf að passa við getuna eins og hún er núna. Markmiðið er að byggja kerfið upp, ekki tæma það aftur og aftur.
Orkan í miðjunni — sex stoðir sem styðja sama reksturinn.
KJARNINN
Álag kallar á aðlögun — en aðlögunin gerist aðeins ef endurheimtin fær rými.
ÞEKKIRÐU ÞETTA?
Líkaminn er að senda skilaboð
Þetta eru ekki merki um leti eða skort á aga. Þetta eru upplýsingar — og góður staður til að byrja að hlusta.
„Líkaminn er stirður eftir langa setu“
Kyrrseta dregur úr blóðflæði og líkaminn fær fá skilaboð um að viðhalda burðum sínum.
„Orkan hrynur eftir áreynslu“
Ef hreyfing kostar meira en kerfið ræður við í dag getur líðanin versnað í kjölfarið. Það er mikilvæg vísbending — ekki veikleiki.
„Ég veit ekki hvar ég á að byrja“
Ráðin eru mörg og oft stór. Besta byrjunin er yfirleitt minni en þú heldur.
HVAÐ GERIST Í LÍKAMANUM?
Orka, stjórnun og burðir
Sound Health horfir á heilsu í gegnum þrjár tengdar víddir. Hreyfing snertir þær allar.
ORKA
Fleiri og öflugri orkustöðvar
Vöðvar í notkun taka upp blóðsykur og styðja efnaskiptin. Regluleg hreyfing örvar nýmyndun hvatbera — orkustöðva frumnanna.
STJÓRNUN
Losar um og gefur takt
Hreyfing hjálpar líkamanum að vinna úr streitu og styður dægurtaktinn — sérstaklega þegar hún fer fram í dagsbirtu.
BURÐIR
Það sem er notað helst við
Styrkur, jafnvægi og liðleiki eru varaforði fyrir daglegt líf — og hjálpa okkur að halda sjálfstæði eftir því sem árin líða.
ORKUBÓKHALDIÐ
Hvað styður reksturinn — og hvað gerir hann dýrari?
Ekki öll orka er laus til afnota. Líkaminn borgar grunnreksturinn fyrst. Það sem eftir er fáum við að ráðstafa og njóta.
Grunnrekstur
Orka til afnota
Varaforði
Fjárfesting
Styður grunnþörfina og léttir á kerfinu
+ Stuttar hreyfipásur yfir daginn
+ Styrkur sem líkaminn ræður við
+ Göngutúr á þínum hraða
+ Hvíld og endurheimt eftir álag
Útgjöld
Gerir reksturinn dýrari og þrengir að orkunni
− Löng kyrrseta án hléa
− Álag sem fer ítrekað yfir getu
− Allt-eða-ekkert-hugsun
− Of lítil endurheimt á milli
HEILSUFÆRI
Byrjaðu þar sem þú ert
Það þarf ekki allt að breytast í einu. Veldu eitt heilsufæri sem passar við orkuna þína núna — smá breyting getur skipt máli þegar hún hittir rétt.
SKREF 1 · STÖÐGA
Þegar orkan er lítil
Hreyfipása
Stattu upp og hreyfðu þig í tvær mínútur.
Liðleiki
Hreyfðu stífa liði rólega í þægilegu hreyfisviði.
SKREF 2 · ENDURHEIMTA
Þegar svigrúmið vex
Göngutúr
Farðu í stuttan göngutúr á hraða sem hentar þér.
Endurheimt
Gefðu líkamanum svigrúm til að jafna sig eftir álag.
SKREF 3 · BYGGJA
Þegar grunnurinn styrkist
Styrkur
Gerðu nokkrar styrkjandi hreyfingar sem líkaminn ræður við.
Stígandi
Bættu litlu við þegar líkaminn sýnir að hann þolir það.
Í SAMSPILI
Heilsa verður til í samspili
Grunnstoðirnar eru ekki aðskilin hólf. Þegar ein styrkist fá hinar oft meðbyr.
FRÆÐSLA
Dýpra í hreyfingu
Viltu skilja betur hvað liggur að baki? Hér birtast nýjustu greinar og upptökur um hreyfingu og endurheimt — lestu eða hlustaðu á þínum hraða.
Greinar
Upptökur
Upptökur eru hluti af áskrift Sound Health — fræðsla sem þú getur hlustað á eða horft á þegar þér hentar.
FYRIR ÁSKRIFENDUR
TEGUND
Lengd
Titill upptöku
Stutt lýsing á upptökunni birtist hér.
Efnið er almenn fræðsla og kemur ekki í stað einstaklingsbundins læknismats. Ef einkenni eru alvarleg, langvarandi eða versnandi skaltu leita til læknis.






