Skilmálar Sound Health
Síðast uppfært: 24. september 2026
1. Um Sound Health og gildissvið
Þessir skilmálar gilda um stafræna þjónustu, áskriftir og aðra þjónustu sem Sound Health býður einstaklingum. Við kaup eða skráningu gilda jafnframt þær sérstöku upplýsingar um verð, inntak og afhendingu sem birtast við viðkomandi þjónustu.
-
Rekstraraðili: Sound Health ehf.
-
Kennitala: 660424-0590
-
Heimilisfang: Elliðabraut 4, 110 Reykjavík
-
Tölvupóstur: info@soundhealth.is
-
Sími: 777 8255
2. Áskrift að Mínu rými
Inntak og aðgangur
Mitt rými er persónulegt stafrænt svæði með SoundCheck, fræðslu, verkfærum og öðru efni sem lýst er á áskriftarsíðu. Aðgangur er persónubundinn og ekki má deila innskráningarupplýsingum með öðrum.
Verð, afslættir og endurnýjun
Áskrift að Mínu rými endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega. Gildandi verð og heildargreiðsla fyrir hvert tímabil koma fram á áskriftarsíðu og í kaupferlinu áður en kaup eru staðfest.
Sound Health kann að bjóða tímabundna afslætti eða kynningartilboð. Verð, gildistími og aðrir skilmálar hvers tilboðs koma fram við kaup. Þegar afsláttartímabili lýkur endurnýjast áskriftin á því almenna áskriftarverði sem kynnt var við kaupin, nema annað sé tekið fram.
Verði almennt áskriftarverði breytt síðar verður áskrifanda tilkynnt um breytinguna áður en hún tekur gildi. Áskrifandi getur sagt áskriftinni upp áður en næsta endurnýjunargreiðsla fer fram.
Uppsögn áskriftar
Áskrifandi getur sagt áskriftinni upp hvenær sem er á síðunni Áskriftin mín innan Míns rýmis eða með því að senda tölvupóst á info@soundhealth.is.
Uppsögn þarf að berast áður en næsta endurnýjunargreiðsla er framkvæmd. Eftir uppsögn verður ekki rukkað fyrir nýtt áskriftartímabil, en aðgangur helst opinn út það tímabil sem þegar hefur verið greitt fyrir. Enginn sérstakur uppsagnarfrestur eða binditími er á áskriftinni.
Réttur til að falla frá kaupum
Við kaup á nýrri áskrift á netinu hefur neytandi 14 daga rétt til að falla frá samningnum frá þeim degi sem gengið er frá áskriftinni. Beina skal ótvíræðri tilkynningu um að fallið sé frá kaupum til info@soundhealth.is.
Ef rétturinn er nýttur innan frestsins verður upphaflega greiðslan endurgreidd og aðgangi að Mínu rými lokað. Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumiðli og notaður var við kaupin og eigi síðar en 14 dögum eftir að tilkynning berst.
Endurgreiðslur eftir 14 daga
Eftir að 14 daga fresturinn er liðinn eru þegar greidd áskriftargjöld almennt ekki endurgreidd og ekki er veitt hlutfallsleg endurgreiðsla vegna þess tíma sem eftir er af greiddu tímabili.
Þetta skerðir ekki lögbundinn rétt neytanda vegna galla, rangrar eða tvöfaldrar rukkunar eða þess að þjónustan hafi ekki verið veitt samkvæmt samningi. Slík mál eru metin sérstaklega og rangar greiðslur endurgreiddar.
3. Almennir þjónustuskilmálar
Eðli þjónustunnar
Sound Health leggur áherslu á heildrænt stöðumat, fræðslu, valdeflingu, lífsstílsbreytingar og ráðleggingar.
Stafrænt fræðsluefni, SoundCheck og almenn verkfæri innan Míns rýmis eru ekki einstaklingsbundin læknisráðgjöf og eru ekki ætluð til að greina eða meðhöndla sjúkdóma. Þau koma ekki í stað skoðunar, greiningar eða meðferðar hjá viðeigandi heilbrigðisstarfsmanni.
Þegar heilbrigðisþjónusta er veitt af löggiltum heilbrigðisstarfsmanni fer hún fram innan starfsheimilda viðkomandi og samkvæmt gildandi reglum um heilbrigðisþjónustu, skráningu og öryggi upplýsinga.
Þjónusta Sound Health kemur ekki í stað heimilislæknis eða annarra sérgreinalækna heldur getur verið viðbót við aðra heilbrigðisþjónustu. Sound Health getur, eftir því sem við á, unnið með öðrum heilbrigðisaðilum notanda. Ef niðurstöður kalla á nánari skoðun eða eftirfylgd innan heilbrigðiskerfisins er notanda leiðbeint um viðeigandi næstu skref.
Ekki bráðaþjónusta
Sound Health er ekki bráðaþjónusta. Í neyð skal hringja í 112. Við bráð eða alvarleg einkenni skal leita tafarlaust til viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
Sjúkratryggingar, rannsóknir, lyfseðlar og vottorð
Nema annað sé tekið fram er þjónusta Sound Health ekki niðurgreidd af Sjúkratryggingum Íslands.
Kostnaður vegna blóðrannsókna og annarra rannsókna er almennt ekki innifalinn í verði þegar þörfin er einstaklingsbundin. Undantekning getur gilt um tiltekin stöðumat þar sem rannsóknarkostnaður er sérstaklega sagður innifalinn í lýsingu og verði þjónustunnar.
Sound Health býður almennt ekki upp á endurnýjun lyfseðla eða vottorðagerð. Leita skal til heilsugæslu eða annars viðeigandi heilbrigðisstarfsmanns vegna slíkra erinda.
Bókaðir tímar og afbókun
Bókaðan tíma má afbóka eða færa án gjalds með minnst 24 klukkustunda fyrirvara með því að senda tölvupóst á info@soundhealth.is eða hafa samband í síma 777 8255.
Ef afbókun berst með skemmri fyrirvara en 24 klukkustundum, eða ef viðskiptavinur mætir ekki, kann Sound Health að innheimta allt að fullt gjald fyrir hinn bókaða tíma. Við mat á gjaldi er tekið tillit til aðstæðna og þess undirbúnings sem þegar hefur farið fram.
Kostnaður vegna blóðrannsókna, annarra rannsókna eða sérstaks undirbúnings sem þegar hefur verið framkvæmdur eða pantaður fyrir viðskiptavin er almennt ekki endurgreiddur, enda hafi upplýsingar um kostnað og fyrirkomulag komið fram fyrirfram. Sá hluti fyrirframgreiðslu sem tilheyrir þjónustu sem ekki hefur verið veitt er endurgreiddur eftir því sem við á, að frádregnum sannanlegum kostnaði sem þegar hefur fallið til.
Þurfi Sound Health að aflýsa bókuðum tíma er viðskiptavini boðinn nýr tími. Hafi þjónustan verið greidd fyrirfram og nýr tími hentar ekki er greiðslan endurgreidd.
4. Persónuvernd og sjúkraskrár
Meðferð persónuupplýsinga og heilsufarsupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu Sound Health. Þar kemur meðal annars fram hvaða upplýsingum er safnað, í hvaða tilgangi, hversu lengi þær eru varðveittar og hver réttindi einstaklinga eru.
Þegar veitt er heilbrigðisþjónusta sem fellur undir skyldu til færslu sjúkraskrár eru viðeigandi upplýsingar skráðar og varðveittar samkvæmt lögum og reglum sem gilda um sjúkraskrár. Stafrænar samantektir eða fræðsluniðurstöður innan Míns rýmis eru ekki sjálfkrafa hluti sjúkraskrár nema annað sé sérstaklega tekið fram.
5. Rekstur stafrænnar þjónustu
Sound Health leitast við að tryggja öruggan og samfelldan aðgang að stafrænni þjónustu. Tímabundnar truflanir geta þó orðið vegna viðhalds, tæknibilana eða atvika sem Sound Health ræður ekki við. Komi upp veruleg truflun skal hafa samband við info@soundhealth.is.
Sound Health kann að uppfæra efni og virkni þjónustunnar. Ef efnisleg breyting hefur áhrif á greidda áskrift verður notanda tilkynnt um hana með hæfilegum fyrirvara.
6. Kvartanir og lögbundin réttindi
Spurningum, kvörtunum og beiðnum um endurgreiðslu skal beina til info@soundhealth.is. Sound Health leitast við að svara erindum eins fljótt og kostur er.
Lögbundinn réttur neytenda samkvæmt íslenskum lögum gildir ávallt óskertur. Um skilmálana og viðskipti við Sound Health gilda íslensk lög.
