Fara beint í efni

Um okkur

Hvað er Sound Health?

Hlusta. Skilja. Stilla.

Sound Health er íslenskt heilsufyrirtæki í lífsstílslækningum. Við hjálpum fólki að skilja líkama sinn betur, byggja upp orku og finna raunhæf næstu skref í eigin heilsu.

Teikning: Kjartan og Tekla standa við hátt borð með kaffibolla.

Við horfum ekki á líkamann sem safn af ótengdum vandamálum, heldur sem lifandi kerfi þar sem efnaskipti, svefn, taugakerfi, næring, hreyfing, streita, melting og daglegt líf hafa áhrif hvert á annað.

Fyrsta skrefið er að skilja stöðuna. Síðan leitum við að heilsufærum — stöðum þar sem lítil eða hófleg breyting getur skipt máli þegar hún hittir rétt.

Hjá Sound Health er markmiðið ekki fullkomnun, heldur meiri samhljómur og taktur sem líkaminn ræður við.

Teymið

Stofnendur Sound Health lífsstílslækninga eru læknahjónin Tekla H Karlsdóttir og Kjartan H Loftsson.

  • Kjartan Hrafn Loftsson

    Lífsstílslæknir

    Kjartan Hrafn Loftsson

    Almennur læknir með mikla reynslu úr heilsugæslu og lífsstílsnálgun til að hægja á eða stöðva framþróun langvinnra kvilla.

    Kjartan útskrifaðist úr læknadeild HÍ árið 2007 og hefur unnið í heilsugæslu í tæpan áratug, bæði í Svíþjóð og á Íslandi. Einnig hefur hann verið trúnaðarlæknir fyrir fyrirtæki og stofnanir, læknir á hjúkrunarheimilum og unnið við rannsóknir hjá Íslenskri erfðagreiningu.

    Meira um Kjartan

    Haustið 2020 hóf hann störf sem læknir hjá stafræna heilbrigðisfyrirtækinu SidekickHealth og vann þar við uppsetningu á rannsóknum og klínískri þróun stafrænna meðferðarúrræða vegna langvinnra sjúkdóma.

    Frá 2014 hefur Kjartan verið sérstaklega áhugasamur um áhrif lífsstíls á heilsu og sjúkdóma, en jafnframt að komast að rót vandans þegar það er mögulegt og beita lífsstílsúrræðum sem oftar en ekki hafa áhrif á mörg einkenni. Öll erum við mismunandi og því er oft nauðsynlegt að sérsníða meðferð að hverjum og einum. Fyrir marga snýst lífsstíll um bætta heilsu á efri árum og þar með forvörnum eða vinna að því að seinka aldurstengdum sjúkdómum en fyrir aðra getur lífsstílsmeðferðin snúið við þróun þeirra, minnkað þörf fyrir lyf og bætt lífsgæði.

  • Tekla Hrund Karlsdóttir

    Lífsstílslæknir

    Tekla Hrund Karlsdóttir

    Almennur læknir með sérstakan áhuga og færni í að tengja saman flókin einkenni og hefur mikla heildræna yfirsýn.

    Tekla útskrifaðist úr læknadeild HÍ árið 2012 og síðan þá hefur unnið á heilsugæslu, endurhæfingardeildum á Reykjalundi og deildarlæknir á barna- og unglingageðdeild um tíma. Þá vann hún við rannsóknir hjá Íslenskri erfðagreiningu í rúm 2 ár og tók meðal annars virkan þátt í skimunum og rannsóknum á eftirköstum vegna Covid-19.

    Meira um Teklu

    Frá 2021-2023 starfaði Tekla sem læknir hjá stafræna heilbrigðisfyrirtækinu Sidekick Health við að búa til meðferðarúrræði á rafrænu formi fyrir einstaklinga með fitulifur og aðra tengda efnaskiptasjúkdóma.

    Samhliða vinnu síðastliðinna ára hefur hún einnig verið meðlimur í evrópskum rannsóknarhóp á síþreytu eða EMERG (European ME Research Group). Áhugasvið Teklu á læknavísindum er breitt og spannar allt frá toppi til táar en hún hefur sökkt sér í efnaskiptaheilsu sem og tengingu hennar við ýmsa flókna fjölkerfa sjúkdóma eins og ME/CFS (síþreytu), vefjagigt, yfirhreyfanlegir liðir og POTS ofl.

Annað áhugavert

  • 2023

    Lífsstílslækningar á Íslandi – stofnun ILMA 2023

    Haustið 2023 stofnuðu Kjartan og Tekla ásamt 2 læknum Félag lífsstílslækninga á Íslandi – ILMA (Icelandic Lifestyle Medicine Association), sem hefur það að markmiði að vekja athygli heilbrigðisstarfsfólks og almennings á krafti lífsstílsbreytinga til að bæta heilsu og færni.

    ILMA á Facebook
  • 2024

    Vísindagrein birt í JMIR Cardio í febrúar 2024

    Við störf sín hjá Sidekick Health, skrifaði Tekla og setti saman fræðslu- og lífsstílsprógram fyrir einstaklinga með fitulifur á grunni efnaskiptavillu en ekki áfengis. Verkefnið var stórt og komu margir að rannsókninni, en niðurstaðan var sérlega ánægjuleg. Meðferðin snérist um fræðslu, valdeflingu og ákveðnar lífsstílsbreytingar til að létta á lifrinni. Heilt yfir minnkaði lifrarfitan um tæp 20% á 12 vikum og blóðþrýstingur lækkaði um 6 mmHg (efri mörk) að meðaltali.

    Lesa greinina
  • Vísir

    Viðtal Völu Matt við lífsstílslæknana

    Horfa á viðtalið