Persónuverndarstefna Sound Health
Síðast uppfært: 27. október 2026
Við viljum vinna með eins litlar persónuupplýsingar og hægt er. Hér segjum við á mannamáli hvaða upplýsingum við söfnum, af hverju, hve lengi við geymum þær og hvaða rétt þú átt.
1. Hver ber ábyrgð?
Sound Health ehf. ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er hér.
- Sound Health ehf., kennitala 660424-0590
- Elliðabraut 4, 110 Reykjavík
- Tölvupóstur: info@soundhealth.is
Stefnan gildir um vefinn soundhealth.is, Mitt rými og SoundCheck, samskipti við okkur og þjónustu Sound Health.
2. Þegar þú skoðar vefinn
Engar vafrakökur og engin auglýsingarakning. Vefurinn notar hvorki vafrakökur né mælingartól á borð við Google Analytics eða Meta Pixel, og birtir engar auglýsingar.
Undantekning: þeir sem fá sérstakan forskoðunartengil fá eina nauðsynlega vafraköku sem hleypir þeim inn á síður sem eru ekki enn opnar almenningi. Hún inniheldur engar persónuupplýsingar og er ekki notuð til mælinga.
Nafnlausar heimsóknatölur
Við notum Vercel Web Analytics til að sjá hve margir heimsækja vefinn og hvaða síður eru skoðaðar. Mælingin notar engar vafrakökur og safnar ekki upplýsingum sem bera kennsl á þig. Heimsóknir eru aðeins taldar saman, til dæmis eftir síðu, landi, tegund tækis og því hvaðan heimsóknin kom. Auðkenni heimsóknar endurnýjast daglega, svo ekki er hægt að rekja ferðir þínar á milli daga.
Eins og allir vefir skráir hýsingaraðili vefsins tæknilegar upplýsingar um heimsóknir í netþjónaskrár, svo sem IP-tölu, tegund vafra og tíma. Þær eru notaðar til að halda vefnum öruggum og gangandi og eru aðeins geymdar í stuttan tíma.
Efnaskiptareiknivélin
Útreikningurinn fer fram í vafranum þínum. Gildin sem þú slærð inn eru hvorki send til okkar né vistuð.
3. Þegar þú hefur samband
Ef þú sendir okkur tölvupóst fáum við nafn þitt, netfang og það sem þú skrifar. Við notum það aðeins til að svara erindinu og geymum það ekki lengur en þörf er á.
Ekki senda okkur viðkvæmar heilsufarsupplýsingar í tölvupósti.
Spurt og svarað
Spurningar sem áskrifendur senda inn fyrir fram notum við aðeins til að undirbúa fundinn, og við lesum þær upp án þess að nefna þann sem spurði. Fyrri hluti fundarins er tekinn upp og upptakan er aðgengileg áskrifendum í Mínu rými. Umræðan í lokin er hvorki tekin upp né vistuð, en spurningar sem þar eru settar fram sjást öðrum þátttakendum.
Fyrirfram sendar spurningar berast okkur í gegnum eyðublað á vef Wix. Við eyðum þeim eigi síðar en 30 dögum eftir fundinn.
4. Mitt rými og áskrift
Til að nota Mitt rými stofnar þú aðgang. Þá vinnum við með nafn, netfang, innskráningarupplýsingar og upplýsingar um áskriftina (til dæmis hvenær hún hófst og hvort hún er virk).
Greiðslur
Greiðslur fara í gegnum greiðsluþjónustuna Straum. Kortaupplýsingar þínar fara beint til hennar; við fáum aldrei fullt kortanúmer.
5. SoundCheck
SoundCheck er spurningalisti í Mínu rými um orku, svefn, næringu, hreyfingu, álag og líðan. Hann hjálpar þér að spegla eigin stöðu, finna áherslusvið og velja fræðslu og næsta skref. SoundCheck greinir ekki sjúkdóma og kemur ekki í stað mats heilbrigðisstarfsmanns.
Svörin þín eru ekki vistuð
Svörin eru aðeins notuð til að reikna niðurstöðuna á meðan þú tekur SoundCheck. Að því loknu vistum við ekki einstök svör.
Það sem við vistum
- að þú hafir lokið SoundCheck, og hvenær
- hvaða útgáfa af SoundCheck var notuð
- næsta skref sem niðurstaðan bendir á
- allt að þrjú fræðslusvið sem passa þér
- að þú hafir veitt samþykki, hvenær og fyrir hvaða útgáfu textans
Þetta er tengt aðganginum þínum svo niðurstaðan bíði þín næst þegar þú kemur inn. Ný niðurstaða kemur í stað þeirrar eldri.
Það sem við vistum ekki
Einstök svör, kennitölu, lyf, sjúkdómasögu, blóðprufur, myndgreiningar, læknabréf, frjálsan texta um einkenni, gögn úr snjallúrum eða heilsustig.
Samþykki
Þar sem svörin snerta heilsu biðjum við um skýrt samþykki áður en SoundCheck hefst. Þú getur dregið samþykkið til baka hvenær sem er; þá eyðum við niðurstöðunni.
Sjálfvirk úrvinnsla
SoundCheck velur áherslusvið og fræðsluefni eftir fyrirfram skilgreindum reglum, án þess að starfsmaður fari yfir hverja niðurstöðu. Niðurstaðan er leiðsögn að fræðslu og hefur engin áhrif á aðgang þinn að heilbrigðisþjónustu, tryggingar, fjárhagsleg réttindi eða meðferð.
6. Stöðumat og ráðgjöf
Þegar læknir hjá Sound Health veitir þér heilbrigðisþjónustu, til dæmis í stöðumati eða einstaklingsráðgjöf, eru viðeigandi upplýsingar skráðar og varðveittar samkvæmt lögum og reglum sem gilda um sjúkraskrár.
Niðurstöður úr SoundCheck og annað efni í Mínu rými verður ekki sjálfkrafa hluti af sjúkraskrá.
7. Hvað við gerum aldrei
- Við seljum ekki persónuupplýsingar og deilum þeim ekki í markaðsskyni.
- Heilsutengdar upplýsingar fara aldrei í auglýsinga- eða mælingakerfi.
- Við notum þær ekki til að beina að þér auglýsingum.
- Við notum þær ekki til að þjálfa gervigreind eða í rannsóknir án sérstaks samþykkis.
- Niðurstöður birtast aldrei í vefslóðum.
8. Á hvaða grundvelli
Vinnslan byggir á persónuverndarlögum (lögum nr. 90/2018 og almennu persónuverndarreglugerðinni, GDPR):
- Samningur: aðgangur, áskrift og þjónusta sem þú kaupir.
- Skýrt samþykki: úrvinnsla heilsutengdra svara í SoundCheck.
- Lagaskylda: bókhald og skráning í sjúkraskrá.
- Lögmætir hagsmunir: öryggi vefsins og svör við erindum.
9. Hverjir vinna gögnin með okkur
Við notum traustar þjónustur sem vinna gögn fyrir okkur samkvæmt vinnslusamningum:
- Wix: Mitt rými, aðgangur, áskrift og gagnagrunnur fyrir SoundCheck-niðurstöður.
- Straumur: greiðslur.
- Hýsingaraðili vefsins: rekstur soundhealth.is.
- Tölvupóstþjónusta: samskipti við þig.
Ef gögn eru unnin utan Evrópska efnahagssvæðisins er það gert með viðeigandi verndarráðstöfunum, til dæmis stöðluðum samningsskilmálum Evrópusambandsins.
10. Hve lengi
- SoundCheck-niðurstaða: á meðan aðgangurinn er virkur. Henni er eytt 90 dögum eftir að aðgangi lýkur.
- Aðgangur og áskrift: á meðan aðgangurinn er virkur, og eftir það eins lengi og lög krefjast.
- Bókhaldsgögn: í 7 ár, eins og lög um bókhald krefjast.
- Sjúkraskrá: samkvæmt lögum um sjúkraskrár.
- Tölvupóstar: á meðan erindið er til meðferðar og hæfilega lengi á eftir.
11. Öryggi
Aðeins þú sérð þína niðurstöðu í Mínu rými. Gögnin eru sótt í gegnum varðan bakenda sem staðfestir að þú sért innskráð/ur og sækir aðeins þín gögn, og þau eru dulkóðuð þar sem við á. Starfsfólk Sound Health skoðar ekki niðurstöður einstakra notenda. Aðgang að gagnagrunninum hefur aðeins ábyrgðarmaður kerfisins, til viðhalds og ef þú biður okkur sjálf/ur um aðstoð. Við geymum heldur ekki meira en þarf: einstök svör þín í SoundCheck eru ekki vistuð (sjá kafla 5).
12. Réttindi þín
Þú átt rétt á að:
- fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig og fá afrit af þeim
- láta leiðrétta rangar upplýsingar
- láta eyða upplýsingum, þar sem við á
- draga samþykki til baka hvenær sem er
- andmæla vinnslu eða fá hana takmarkaða
- fá upplýsingar þínar afhentar á tölvutæku formi
Sendu okkur línu á info@soundhealth.is. Við svörum innan mánaðar.
Ef þú ert ósátt/ur við hvernig við förum með upplýsingarnar getur þú kvartað til Persónuverndar.
13. Aldur
Mitt rými og SoundCheck eru ætluð fullorðnum, 18 ára og eldri.
14. Breytingar
Við uppfærum stefnuna þegar þjónustan breytist og tilgreinum dagsetningu efst. Ef breyting hefur veruleg áhrif á vinnslu upplýsinga um þig látum við þig vita.
