top of page
Orkan í miðjunni
tengsl
hreyfing
umhverfi
ondun
svefn
Næring og melting

Grunnstoðir › Næring og melting

GRUNNSTOÐ 6 AF 6

Næring og melting

byggingarefni og öruggt orkuframboð

Maturinn veitir orku, byggingarefni — og upplýsingar. Samsetning og taktur máltíða hafa áhrif á blóðsykur, mettun og meltingu. Við vinnum án öfga: með alvöru mat, í takt við þínar þarfir og þitt þol.

Orkan í miðjunni — sex stoðir sem styðja sama reksturinn.

KJARNINN

Matur sem miðlar seddu og sátt — og gefur líkamanum öruggt orkuframboð.

ÞEKKIRÐU ÞETTA?

Líkaminn er að senda skilaboð

Þetta eru ekki merki um skort á sjálfsaga. Þetta eru upplýsingar — og góður staður til að byrja að hlusta.

„Orkan dettur niður eftir máltíðir“

Miklar blóðsykursveiflur geta birst sem þreyta, svengd og heilaþoka stuttu eftir mat.

„Ég er alltaf svöng — eða svangur“

Ef máltíðir skila ekki nægri mettun leitar líkaminn eftir meiru. Prótein og trefjar hjálpa til við að gefa seddu.

„Maginn er oft ósáttur“

Meltingin er viðkvæm fyrir streitu, hraða og samsetningu fæðunnar — ekki bara því hvað er borðað.

HVAÐ GERIST Í LÍKAMANUM?

Orka, stjórnun og burðir

Sound Health horfir á heilsu í gegnum þrjár tengdar víddir. Næring og melting snerta þær allar.

ORKA

Sveigjanleg efnaskipti

Góð efnaskiptaheilsa er þegar frumurnar hafa þá orku sem þær þurfa — og geta nýtt bæði fitu og sykur eftir þörfum.

STJÓRNUN

Melting þarf ró

Meltingarvegurinn er þéttsetinn tauga- og ónæmisfrumum. Hann virkar best þegar líkaminn upplifir öryggi.

BURÐIR

Byggingarefni líkamans

Prótein er byggingarefni vöðva, bandvefs, hormóna og taugaboðefna — og þörfin eykst við álag.

ORKUBÓKHALDIÐ

Hvað styður reksturinn — og hvað gerir hann dýrari?

Ekki öll orka er laus til afnota. Líkaminn borgar grunnreksturinn fyrst. Það sem eftir er fáum við að ráðstafa og njóta.

Grunnrekstur

Orka til afnota

Varaforði

Fjárfesting

Styður grunnþörfina og léttir á kerfinu

+  Prótein í aðalhlutverki í máltíðum

+  Fjölbreytt grænmeti, ber og trefjar

+  Reglulegur máltíðartaktur

+  Að borða í ró

Útgjöld

Gerir reksturinn dýrari og þrengir að orkunni

−  Gjörunninn matur og sætir drykkir

−  Stöðugt nart og seint kvöldsnarl

−  Of lítil næring yfir lengri tíma

−  Að borða á hlaupum

HEILSUFÆRI

Byrjaðu þar sem þú ert

Það þarf ekki allt að breytast í einu. Veldu eitt heilsufæri sem passar við orkuna þína núna — smá breyting getur skipt máli þegar hún hittir rétt.

SKREF 1 · STÖÐGA

Þegar orkan er lítil

Reglufesta

Prófaðu aðeins reglulegri máltíðartíma næstu daga.

Vatn

Hafðu vatn sýnilegt og drekktu reglulega yfir daginn.

SKREF 2 · ENDURHEIMTA

Þegar svigrúmið vex

Máltíðarró

Sestu niður og gefðu næstu máltíð óskipta athygli.

Prótein

Bættu góðum próteingjafa við næstu máltíð.

SKREF 3 · BYGGJA

Þegar grunnurinn styrkist

Trefjar

Veldu eina trefjaríka fæðu sem meltingin þolir vel.

Heimamatur

Veldu einfalda máltíð úr sem minnst unnum hráefnum.

Í SAMSPILI

Heilsa verður til í samspili

Grunnstoðirnar eru ekki aðskilin hólf. Þegar ein styrkist fá hinar oft meðbyr.

ondun

Öndun og streitustilling

Nokkrir rólegir andardrættir fyrir máltíð hjálpa meltingunni af stað.

svefn

Svefn og dægurtaktur

Að ljúka síðustu máltíð nokkru fyrir svefn styður bæði svefn og meltingu.

hreyfing

Hreyfing

Stuttur göngutúr eftir máltíð getur jafnað blóðsykurinn.

FRÆÐSLA

Dýpra í næringuna

Viltu skilja betur hvað liggur að baki? Hér birtast nýjustu greinar og upptökur um næringu og meltingu — lestu eða hlustaðu á þínum hraða.

Greinar

Upptökur

Upptökur eru hluti af áskrift Sound Health — fræðsla sem þú getur hlustað á eða horft á þegar þér hentar.

FYRIR ÁSKRIFENDUR

TEGUND

Lengd

Titill upptöku

Stutt lýsing á upptökunni birtist hér.

Fyrir áskrifendur →

NÆSTA SKREF

Hvar leynast þín heilsufæri?

SoundCheck hjálpar þér að sjá hvernig grunnstoðirnar sex spila saman hjá þér — og hvar er skynsamlegast að byrja.

Fjölskylda við matarborð

SKOÐAÐU HINAR GRUNNSTOÐIRNAR

tengsl

Tengsl og tilgangur

hreyfing

Hreyfing

umhverfi

Umhverfi og náttúra

ondun

Öndun og streitustilling

svefn

Svefn og dægurtaktur

naering

Næring og melting
Þú ert hér

Efnið er almenn fræðsla og kemur ekki í stað einstaklingsbundins læknismats. Ef einkenni eru alvarleg, langvarandi eða versnandi skaltu leita til læknis.

bottom of page