top of page

Kerfin tala saman

LÍFFRÆÐILEGAR STOÐIR

Öll kerfi líkamans leggja sit tað mörkum - með það sameiginlega markmið að halda þér á lífi

Heilsa - Þetta helst allt í hendur

Myndir Soundhealth (55).png

Frá orkubókhaldi að orkurekstri

 

Í Orkubókhaldinu skoðuðum við hvert orkan fer — og hvað verður eftir.

En hvernig ákveður líkaminn hvað fær forgang?

Hann metur stöðugt aðstæður, stillir starfsemina og ráðstafar orkunni eftir þörfum.

Þetta er orkureksturinn — og hann verður til í samspili kerfa.

Ekkert kerfi vinnur eitt

Kerfin skiptast stöðugt á upplýsingum og laga sig hvert að öðru.
Taugakerfi, ónæmiskerfi, efnaskipti, hormón og bandvefur vinna

saman að því að lesa aðstæður, samhæfa viðbrögð og forgangsraða orku eftir þörfum.

Þetta samspil er síbreytilegt — það sem gerist í einu kerfi getur haft áhrif víðar um líkamann.

Bandvefurinn myndar vettvanginn. Dægursveiflan heldur taktinum.

Myndir Soundhealth (57).png

Les heiminn og stillir svarið

TAUGAKERFIÐ

Taugakerfið hjálpar okkur að rata örugglega í gegnum lífið.

 

Það tekur stöðugt við upplýsingum úr umhverfinu og innan úr líkamanum,

túlkar þær og hjálpar okkur að ákveða hvað skiptir máli hverju sinni.

Það tengir saman skynjun, hreyfingu og sjálfvirka líkamsstjórn — svo

við getum brugðist við aðstæðum, aðlagast þeim og haldið áfram.

 

​Taugakerfið gefur okkur hraða til að bregðast við — og getu til að læra af reynslu, sjá fram fyrir og velja næsta skref.

1/5

Samhæfingarstöð líkamans

HEILINN

Myndir Soundhealth (59).png

Heilinn tekur stöðugt við upplýsingum um það sem gerist í kringum okkur og innra með okkur. Öll kerfi líkamans miðla honum upplýsingum um stöðuna — beint eða óbeint.

Hann sameinar þessar upplýsingar við fyrri reynslu og meðfæddar forstillingar og myndar út frá því sitt besta mat hverju sinni: hvað er að gerast, hvað skiptir máli og hvað líklega þarf að gerast næst.

Tilfinningar, hvatir og athygli eru ekki tilviljunarkennd. Þau hjálpa að gefa hlutunum vægi og beina hegðun — og orku — þangað sem skiptir mestu máli hverju sinni.

Heilinn heldur utan um heildarmyndina. Samhæfingin verður til í stöðugu samtali við líkamann.

Myndir Soundhealth (58).png
bottom of page